John Myung er bassaleikari hljómsveitarinnar Dream Theater. Hann fæddist 24. janúar 1967. Hann byrjaði á bassa 15 ára, en hafði þá spilað á fiðlu í 10 ár. Hann byrjaði á bassann þegar nágranni hans bað hann um að koma í hljómsveit með sér. Aðaláhrifavaldar hans eru Chris Squire (Yes), Steve Harris (Iron Maiden) og Geddy Lee (Rush).
Hann spilar á 6 strengja Yamaha RBX bassa, Chapman Stick og notar SWR. Hann er reyndar nýbyrjaður að nota SWR, hefur annars notað Mesa Boogie mjög lengi.