Ég er að dunda mér við að púsla saman síðu með textum og gítarhljómum við íslensk lög. Þetta er dót sem ég hef oft leitað af og finnst vanta.

Síðan er inni á netinu á <a href="http://www.simnet.is/johannsb">www.simnet.is/johannsb</a> og verður það þangað til að ég finn einhvern host.

Síðan eins og er, er bara prufa og er langt frá því að vera til. Ég á eftir að gera nýtt look því mér finnst þetta ekkert flott og svo vantar auðvitað lög.

Ef þú átt einhver lög í .txt file eða einhverju álíka (má vera word og hvað sem er) og ef þú nennir að pikka eitthvað inn, endilega þá senda mér til að gera þessa síðu almennilega.
Líka ef þú hefur hugmynd af look'i, nafni, logi'i eða einhverju endilega senda mér á johannsb@simnet.is.

Vonandi getið þið notað þessa síðu ef eitthvað verður úr henni :)