Ég vil bara koma á framfæri að til Akureyrar er að koma all svaðalegur Rokk og Metal gítarleikari sem ætlar að halda námskeið fyrir gítarleikara sem vilja skara framúr. Hann heitir Thiago Trinsi og kemur frá Brasilíu. Hann er í Dream Theater cover bandi ásamt því að vera eftirsóttur session/stúdío spilari og kennari.
Námskeiðið fer fram dagana 28-29 júlí frá kl 17-22 báða dagana og kostar um skitinn 6 þúsund kall (ég meina, klukkutíminn í tónlistarskóla kostar um 2þúsund og það sem hann ætlar að kenna er ekki kennt í almennum tónlistarskólum).
Ég hvet alla áhugamenn um gítarleik að mæta.
Þetta er ógleymanlegt tækifæri. Athugið fjöldatakmarkanir.
Skráning og upplýsingar í síma 866-6803.
Kær kveðja.
Eina