Þessi skoðanakönnun sem er í gangi núna er fyrir neðan allar hellur, ekki útaf gítarleikurunum sem eru í henni, heldur útaf þeim sem ekki eru í henni. Það vantar að hafa Ekki ofangreindur hnapp, því það eru gítarleikarar í heiminum sem er þúsund sinnum betri heldur þeir sem nefndir eru. Bara að benda á þetta. Svipað og þegar ég ætlaði að setja inn skoðanakönnun um hvaða gítar ykkur þætti best að spila á. Nefndi Fender, Gibson, Ibanez, Washburn og einhverja fleiri, en vantaði helling þannig að ég hætti einfaldlega við, vegna þess að hún yrði fáránleg. Hver af þessum er bestur í heimi???? Þetta er því miður aulaspurning, heldur ætti að standa þarna, hver af þessum er bestur!
Nefna smá lista sem mætti vera þarna t.d.

Yngwie Malmsteen (Hann er jú með hraðari gítarleikurum þannig)
Ritchie Blackmoore (Deep Purple)
Jimmy Page
Jimi Hendrix
Gítarleikarinnn í Pink Floyd (man ekki hvað hann heitir)
Mark Knopfler (Dire Straits)
Clapton
Enginn ofantaldra
Ég er stigahóra (sem var náttúrulega Ég á listanum)

Og hellingur sem ég gæti nefnt af gítarleikurum, en það tæki líka samsvarandi tvær síður í Word :)

Þannig að bara að benda á þetta. Þetta er ekki góð leið til að búa til góða skoðanakönnun.

ViceRoy