Annar bikar í DH !!! Annað bikarmót í bikarmótaröðinni í downhill verður haldið laugardaginn 09 júní. Það verður haldið í nýrri braut í Úlfarsfelli. Það verður startað klukkan 14:00. Og því verða keppendur að vera mættir í síðastalagi klukkan 13:00. Og menn verða að vera búnir að taka að minnsta kosti 2 æfingaferðir fyrir keppni. Hjólin verða að vera í pottþéttu standi í þessari braut og allar hlífar mjög nauðsinlegar. Sem fyrr er keppnisgjald 1500kr í forskráningu. Og sömu flokkar og í öðrum Dh mótum á vegum Hfr.