Sælir kepps.

Ég er hérna með alvöru dempara fyrir durta sem eiga karlmannshjól. Við erum að tala um 2006 Rock Shox Boxxer Ride U-Turn dual crown dempara, 133-178mm stillanlegt travel og stillanlegt compression og rebound. Demparinn er um það bil 3,3 kg og notast við 20mm öxul. Hann er örlítið notaður en það sést ekki á honum. Ég lét hann í yfirhalningu þegar ég fékk nýja demparann og eiga öll innsigli að vera í góðu standi.

Verð: 35þ. krónur, eða skipti á single crown dempara sem er yfir 130-140mm.


Svo er ég líka með Funn direct mount stem fyrir Rock Shox Boxxer dempara sem ég er vill losna við líka. Hann er í topp standi með einhverjar smá rispur á sér eftir venjulega notkun.

Verð: nokkrir þúsundkallar ef hann fer með demparanum og aðeins fleiri þúsundkallar ef hann fer sér.


Hér er mynd af öllu dótinu.


Hendið í mig skilaboðum eða svarið hérna ef þið hafið áhuga.