Ég var að kaupa mér hjól á mánudaginn og getiði hvað lendi strax í slysi, hjólið slapp en get ekki sagt það sama um munninn á mér, þetta gerðist svona; ég og vinir mínir ákváðum að hjóla á eftir bíl bara í svona flippi og svo gefur bílinn í og ég hætti að hjóla læt það renna og lít til hliðar og tala við vin minn svo hætti ég að heyra í bílnum og lít framfyrir mig þá er bíllinn svona 1 metra frá mér og ég tek í báðar bremsurnar (nýbúinn að strekkja frambremsunar, bara fyrr um daginn, góð tímasettning) og ég skíkst framfyrir mig og munnurinn beint á bílinn og hann rispaðist smá löggan kölluð á staðinn og núna lít ég út eins og gilitrutt útaf þessari bólgu:D leiddist bara og langaði að segja ykkur frá þessu:P