Á morgun sunnudag 8 júní er ætlunin að taka skurk í brautinni og moka upp nokkra góða berms í neðsta kaflanum .. við verðum þarna um hádegi og eithvað frameftir . þannig að allir sem hafa á huga endilega mæta með skófluna sína og hjólið ! það er hægt að hjóla suma parta brautarinnar eins og er ug um að gera að fara hjóla það til .. ekki þó þannig að hjólaumferð trufli þá sem eru að moka.. því fleyri að moka því betri braut….

hér er linkur í nýjustu myndir
http://www.voffi.org/viewtopic.php?t=829&postdays=0&postorder=asc&start=36

og svo eru hér fyrir neðan reglur um svæðið ..endilega lesið þetta svo við missum nú ekki leyfið áður en við klárum brautina

REGLUR UM UMGENGNI OG VINNSLU Á SVÆÐINU.

1>>> Leyfi þarf að fá hjá Magne eða Jökli fyrir öllum framkvæmdum í brautinni.

2>>> Ekkert óþarfa ofbeldi við tréin eða gróður.

3>>> Taka með sér allt rusl, ekki setja það undir steina.

4>>> Gera sér grein fyrir mikilvægi þess að þetta líti vel út. þ.e ekkert fúsk og hálfklárað brask.

Við fengum leyfi til að gera þetta með þessum skilyrðum.

Allar hugmyndir um framkvæmdir eru að sjálfsögðu mjög vel þegnar.
en við svona STÓRA FRAMKVÆMD þurfa að vera reglur svo tugir manna fari ekki að framkvæma sínar eigin hugmyndir úr samhengi við allt án þess að ræða við þá sem stýra verkinu.
þetta þarf að vera heilsteipt og gott svo þetta verði braut en ekki svæði með fullt af hálfkláruðu dæmi hér og þar.