Jæja svona er þetta

Ég á Answer Protaper OS, magnað stýri sem er geggjað í freeride, dirtjump, street, downhill og allt bara :P Fislétt líka. 31,8mm oversize stærð.
Það er búið að saga af því 2cm hvoru megin, til að gera það betra í dirt og street.

Mig langar í stærra stýri, þannig að ég er semsagt að óska eftir alvöru stýri, í 31,8mm oversize, sem er helst ekkert sagað af, eða bara ágætlega stórt.

Svo upp á auka bónus þá er þetta kjörið tækifæri fyrir dirt og street menn að skipta niður í minna stýri, ef þeir vilja. Og þá er bara um skipti að ræða, hvort peningur fljóti á milli veltur allt á gæðum stýranna.