Ég er enginn súper hjólaáhugamaður en mér finnst gaman að hjóla og ég er að leita mér að nýju BMX/freestyle hjóli fyrir sumarið. Ég á eitthvað Trek freestyle hjól sem er búið að endast mér í 3 ár, en er að deyja núna. Ég var að spá hvort þið væruð með einhverjar ráðleggingar um hvaða hjól væri gott að kaupa og hvar, ef ég er að leita að hjóli sem er ódýrt og endingarmikið.