Jæja Vargar.tk fékk smá andlitslyftingu um helgina…vona að ykkur lítist á þetta…

Annars var ég að gera myndakerfið skemmtilegra, einsog sumir vita þá getur nú hver sem er (sem skráir sig) sent inn myndir, og þær fara ekki í bið, heldur skellast inn samstundis :)

Hámarksstærðin er 1,5mb eða 1500kb, og 4000x4000 pixlar, það eru gerðar bæði venjuleg og stór útgáfa af myndinni (580px og 960px á lengri kantinn).

Þannig að það ættu ekki að vera mikil vandamál við að senda inn myndir, kerfið virðist vera gallalaust einsog er…sjáum til hvað gerist :)


Mig langar til að hvetja alla til að prufa þetta og endilega sýna smá lit á spjallinu, það þarfnast ykkar ;)