Datt í hug upp á gamanið og til að testa kerfið smá að leyfa notendum að senda inn myndir…

Linkurinn til að senda inn mynd finnst undir myndagallerýinu, og ef þið eruð að skoða myndir undir ákveðnum flokk þá fer myndin í þann flokk.

Hérna er annars linkur á þetta

Þess má geta að það er hægt að senda inn endalaust margar myndir, og líka margar myndir í einu

Það er engin bið á myndunum og enginn til að samþykkja

Stærðartakmörk eru á skráarstærð, ekki stærðinni á myndinni sjálfri, hún verður sjálfkrafa minnkuð ;)

Ég hef allann rétt til að henda einhverjum eða öllum þessum myndum ef mér sýnist, endurtek að þetta er bara prufa, og ég er ekki alveg viss um að ég haldi þessu opnu framvegis, en þetta er þó eitthvað ;)

Látið myndirnar flæða…

Bætt við 10. febrúar 2008 - 01:59
Btw, það er svona sætur lítill “Breyta” takki fyrir ofan myndina, þar sem er hægt að breyta upplýsingunum ;)