ég fann þennann fína Netleik, þið kannist kannski við fyrri leikinn, en leikurinn er free rider 2
Það er hægt að vera á:Full sus hjóli, BMX, Þyrlu, Loftbelgi, einhjóli, trukki, og eitthverjum kassa sem maður veltur aldrei á (til að prufukeyra brautir)
Svo eru nýjar aðferðir til að teikna í honum, t.d. að gera fullkomlega bognar línur fyrir quarter palla og funbox og svoleiðis. alls konar “power ups” þar að segja, er hægt að setja sprengjur í brautina, Graviti þannig maður flýgur, boost og slow motion, svo er hægt að teikna línur sem maður klessir ekki á, og einnig er hægt að setja bakgrunn eins og til dæmis hólar, ský, og borg.

ég setti þetta inn vegna þess að þessi leikur er snilld, og margir hafa verið að leita að eitthverjum góðum leikjum til að halda uppi áhuganum.

vonandi kemur þessi leikur að góðum notum.

Bætt við 13. desember 2007 - 21:52
Og svo er eitt til að gera leikinn raunverulegri, kallinn hjólar með fótunum (ólíkt free rider 1)
Og kallinn dettur AF hjólinu þegar maður dettur
Einnig er manni sagt þegar maður nær trikkum, þar að segja bara backflip, frontflip wheelie og nose manual og stoppie!
Stjórnandi á /hjol