Jæja

Ég er ekki sá eini sem er að pirra mig á þessu og ætla því að ríða á vaðið.

það er svona ár síðan það kom e-h almennilegur spjall korkur! e-h sammála? eflaust…

Þegar allir hérna eru að gera endalausa korka um, hvað þeir séu gamlir, voru að fá hjól, keppnir um að leiðrétta stafsetningarvillur, voru að skipta um nafn og ég tala nú ekki um öll þessi heimsku video sem hafa verið send inn uppá síðkastið! þá vilja góðir spjall korkar sem eiga það til ennþá að poppa upp (sem betur fer) týnast fyrir öllu þessu kjaftæði.

Ég vill meina að þetta sé meira vandamál en sifryksmengun í Reykjavík, því ég verð minna var við hana!

Þannig að, ég vill að við leggjumst allir á eitt og reynum að hemja okkur í þessu korka flóði, þannig gerum við spjallið hérna skemmtilegra og við losnum við óþarfa skítkast í garð þeirra sem bera sök af þessu máli, þeir eru ekki margir og vita þeir eflaust uppá sig sökina. En batnandi mönnum er best að lifa.

Því bið ég ykkur að taka smá tillit til okkar hinna, sem stunda huga.is/hjol til þess að spjalla um hjólin og veginn, en ekki til þess að fá upplýsingar um aldur ykkar og nickname!

Kv Lemmy
www.khe-bmx.com