Hvernig stendur eiginlega á því að þetta er haldið um miðja viku (þriðjudagur og miðvikudagur)? Verð að segja að þetta kom mér dálítið á óvart þegar ég fattaði þetta, bjóst aldrei við öðru en að allar keppnir væru um helgar. Þetta er frekar óþægilegt fyrir okkur utanbæjarmennina sem þurfum að taka 2-3 dag í frí bara til að geta mætt, og það er kannski ekki svo auðvelt fyrir þá sem eru nýbyrjaðir í sínum sumarstörfum.

Er einhver möguleiki á að þessu verði breytt?