Ég lennti í með því fáránlegastu aðstöðu á bmx á miðvikudaginn sem ég hef lennt í. Þannig er það að ég var að fara á jólaball, og ég var kominn til félaga mins og ætluðum að fara saman, þá fattaði ég að ég þurfti aðeins að skjótast heim, og fékk hjólið hans lánað. Allt í góðu með það, fór heim og var svo að koma aftur, og á leiðinni er grashóll sem maður getur smá stokkið á ef maður neglir á hann, líka betra þar sem það var frosinn snjór sem gerði smá fly á honum, og ég alveg negli alla leiðina að hólnum og stekk á honum, en nei, er þá ekki einhver gaur hinu megin við hólinn, með hundinn sinn, að tala í símann haha.. og ég bara stekk yfir gaurinn. Hann ekki alveg sáttur með það haha.. og ég alveg skellihlægjandi að biðjast afsökunnar, þá var hann bara hress með það að það er ekki á hverjum degi sem gaur í jakkafötum á bmx hjóli stekkur yfir hann haha..

einhver spes atvik sem þið viljið deila með okkur hérna?:)