Ég var að telja saman hversu mörg ný DH/FR hjól ég hefði heirt að væru á leiðinni hingað norður í sumar og ég man ekki betur en að það séu 6 einstaklingar sem segjast ætla að kaupa sér hjól og einn sem var að spá í því. Þetta er því 300-350% fjölgun á hjólum hérna fyrir norðan síðan í fyrra, dálítið stórar tölur en við vorum bara tveir á DH/FR hjólum hérna í fyrra.

Þannig að þetta lítur vel út fyrir okkur hérna fyrir norðan, hvað með ykkur fyrir sunnan?