Hæhæ

Ég ætlaði að vera rosalega dugleg og hjóla á hverjum degi, þar sem ég er léleg í að koma mér í að fara út að labba, finnst mikið skemmtilegra að hjóla..

Vandamálið var að það var lítið sem ekkert loft í dekkjunum. Ég tók pumpu og fór að pumpa í dekkin en ekkert gekk það, dekkið var alltaf jafn loftlaust. Þá tók ég aðra pumpu, en ekki gekk það nú heldur. Þá lét ég bróður minn hjálpa mér, gekk ekki. Þá lét ég mömmu gera þetta sem hefur oft pumpað í dekk áður, en það gekk ekki heldur. Mér datt í hug að það væri gat á slönguni eða eitthvað, en við prófum að pumpa í dekk á öðru hjóli líka, en það var líka alltaf jafn loftlaust :S

Ok, gæti vel verið að ég sé að gera þetta eitthvað vitlaust, en mamma hefur pumpað lofti í dekk áður og það hefur alltaf virkað.

Æ, hvað skal gera?
An eye for an eye makes the whole world blind