já, ég var að velta fyrir mér hvernig hjól þið hafið átt frá því að þið byrjuðuð að hjóla?

sjálfur byrjaði ég á bronco freestyle hjóli.. sem hét bara bronco freestyle ef ég man rétt og svo fékk ég mér jamis cross contry sem ég síðan braut.. en útilífs menn voru svo góðir að ég fékk nýtt stell en svo svona 2 mánuðum seinna var fjárfest í mongoose teocali comp en var á því í sirka ár og er núna kominn á hið yndislega banshee scream.. en á samt ennþá teocali compið og pabbi er kominn á cross contryið en bæði orðin heldur stíf og léleg.. allavega er framdemparinn á teocali compinu orðinn annsi stífur.. svoldið eins og að vera bara á soft tail hjóli.. engin fjöðrun að framan, bara aftan