hvað er svona versta atvikið (slysið eða eitthvað, bara það versta) sem þið hafið lennt í á hjóli ?

ég var að lenda í ekkert það slæmu, en alveg nóg allavega.. var að taka drop niður af sviði, og lennti með hægri pedalann aftarlega og löppin þar af leiðandi aftarlega, en ég var svo framarlega að ökklinn kramdist eitthvað saman og allt er í fokki, tognuð liðbönd í öllum pakkanum, má ekkert hjóla í allavega 2 vikur segir læknirinn (hvað ætli það endist lengi haha, miðað við að ég fór fótbrotinn á snjóbretti)..

en já hvert er svona versta atvikið ykkar :)