Jahá þetta er búinn að vera rosadagur, vaknaði klukkan 7 og krúsaði upp í bæ í vinnuna, vann til 5 og krúsaði heim, kominn upp nálægt skeifunni og BAM

keyrt á mig

já það hljómar soldið scary en þetta er ekkert alvarlegt, ég er ekkert brotinn bara heavy dauður í fótunum, erfitt að labba, erfitt að hjóla BAH

hjólið? já það má bara eitt segja við því…
KONA PRIDE
allt óskemmt, smá skráma á 888inum sem sést varla og hjólið enn í toppstandi :)

rosa lífsreynsla þetta, örugglega eitt af því furðulegasta sem hefur gerst fyrir mig. svo er svo fyndið að maður man svo ekkert eftir þessu, man þó eitt, ég hugsaði, akkúrat þegar ég var í loftinu :) um hvað ég geri ef ég fótbrotna! vá heppinn þar! :P jæja eftir á er þetta bara fun, ég get sagst hafa lent í bílslysi og lifað af, og hjólið mitt getur sagt það sama!