Intensinn er aðalega gerður fyrir downhill og þá erum við að tala um að dúndra niður fjöll og kannski dropp líka. Það er ekki gamann að leika sér á stökkpöllum á því vegna fjöðrunarinnar, því hún étur stökkpallinn og þar af leiðandi nær maður engri hæð. En samt sem áður pottþéttur downhill gripur. Ég hef prófað svona hjól á stökkpalla, alveg glatað dæmi.
Intense M1 er allveg skothellt downhill hjól. Það hentar líka mjög vel í að taka mjög stór dropp. En þú færð örugglega ekki M1 fyrir 800-1100$. Ekki nema kannski stolið hjól, ónýtt hjól eða bara stellið eitt. En þetta er bara downhill hjól og ekket annað.
Til dæmis: Cannondale Gemini, santa cruz bullit, kona stinky, orange patriot og specilaized bighit eru allt eðal freeride og downhill hjól sem þú ættir að geta fengið á ebay á þessu verði. Ég held að specialized hjólið sé best af þeim og lang mest fyrir peninginn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..