Ég er búinn að leita með logandi ljósi um allan bæ af bivac á skikkanlegu verði. Yfirleitt þegar ég kem í verslun sem selur útivistardót er enginn bivac til, ef hann er til þá er hann á himinháu verði eða afgreiðslumaðurinn horfir á mig með spurnarsvip og segist ekkert vita um hvað ég er að tala. Svo ég spyr, er einhverstaðar hægt að fá ágætan bivac á þeim kjörum að ég þufi ekki að fara með byssu út í næsta banka og fremja rán.
Tevur eru drasl