Ekki að það sé ætlun mín að tala niður til nokkurns, persónulega finnst mér ömurlegt þegar einhver er rakkaður niður í skítinn hérna á huga ef hann kemur með einhverja spurningu sem öðrum finnst misjafnlega skynsamleg. En mér finnst bara ekki nokkur leið að svara könnuninni að þessu sinni. Það er svosem hægt að bera saman fatnað frá td. Lowe alpine, Berghaus, TNF og svo framvegis en sem útivistavörur sem heild er það að mínu mati ómögulegt. Ég á flísjakka frá 66°N, bakpoka frá Karrimor og hjálm frá Petzl, en hvernig á ég að geta borið það saman?

En það góða er þó að áhuginn á þessu áhugamáli er að aukast og er ekkert nema gott um það að segja.