2x
Liftu mér upp því ég þrái að finna nálægð þína
Liftu mér upp ég skal lofa að lesa alla biblíuna
Liftu mér upp ég er ekki með viti ég er að tapa því
Þrái að finna nálægð þína og friðinn minn kæri skapari

Sit stundum saman við altarið í kirkjunni og fæ sálarfrið
En ég vil finna heilagleika líka fyirir utan musterið
Mér finnst ég vera yfirgefinn að sjálfum guði almáttugum
Öll kvöld bið ég til þín en þú svarar aldrei bænunum
Var mér gleymt viljandi eða var þetta miskilningur
Eða var ég kanski kominn yfir strikið með öllum mínum syndum
En veituru ekki syndaaflausn er það ekki mottóið
Að ég geti farið eftir boðorðunum er jafn líklegt að ég vinni í lottói
Hvað gerði ég svona rangt það er eins gott að þú segir mér frá því
Ef þú getur ekki tekið mig í sátt er þetta þinn eiginn vandi
Nei fyrirgefðu ég ælaði ekki að móðga þig kæri skapari
En gefðu mér sálafrið því ég er hreinlega að tapa því
Hvert sem ég fer er allt svart ský fyrir ofan mig
Er þetta eitthvað sem þú sendir til að hefna þín

(viðlag)
3x

ég má til að vita allan sannleikan á bakvið allt
ég er einvera en afhverju þarf lífið að vera svona kalt
er ég kanski blindur fyrir skaparanum, kanski veit hann að minni tilveruvist
en afhverju finn ég þig ekki í sálinni þarf ég að kafa dýpra eftir jesú krist
þarf ég ef til vil að opna mig fyirir heilagleikanum
þarf ég að losa sálina við öllum tilfinninga þrengslunum
en af hverju þarf ég að kafa dýpra en aðrir
geri ég meiri væntingar sjálfs míns vil ég kanski vera betri
ertu búinn að vera senda mér skilaboð ég hef bara aldrei verið í sambandi
sendu aftur það er samband sendu skilaboðin frá himnaríki
er ekki tilgangurinn í lífinu að finna hinn eina sálrfrið
veittu mér hann kæri skapari ég kríp hér og bið og bið
ég er tilbúinn til að mótaka trúnna ég finn það sjálfur
allt mitt líf hef eg verið svo yfirgefinn ,ekki heill heldur hálfur

(viðlag)
3x

ég finn núna ég mótek allt þetta heilaga
mér líður svo miklu betur, sálafriður og öll þessi ánægja
þú svaraðir mér loksin eða ég loksin mótók það
svarið var ekki að lesa biblíuna staf eftir staf
nú sé ég loksins ljósið og skýið er ekki lengur yfir höfðinu
skýið var mín eigin hugarsmíð bara ein hugsun í öll blöffinu
sem lifði við ég skapaði mina eigin kvöldu sál
enn loksins hef ég fundið staðinn sem ég átti alltaf að leita á
ég veit að þegar lífinu líkur þa mun ég fara í himnaríki
sálin mun rísa upp verð ekki fastur í mínu eigin líki
allt sem ég var hræddur við ég þori að mæta því öllu
því ég fann trúnna og þetta er mín himna köllun

4x
liftu mér upp ég finn máttinn og allan sálarfriðinn
liftu mér upp ég er ánægður samt er minn jaraðrtími liðinn
liftu mér upp ég veit að annað líf bíður fyrir handan
ég er kominn heim ,á heimili skaparans
<br><br>Undirskrift??????
ostur ahhhhh