Paranoya!!!


Ég veit að þeir eru þarna og eru að bíða fyrir utan
vona að ég geri mistök, en ég er enginn Viggó Viðutan
kannski eru þeir með myndavélar í herberginu mínu
þess vegna er ég í þvottahúsinu að krota þessu rímu
með leyniskyttur í næstu húsum að reyna að ná mið á mig
en ég er búinn að byrgja fyrir gluggan, ekki séns að þeir munu sjá mig
búinn að fylla uppí vaskinn með þvottaefni!
eyðir upp óþarfa skít sem og njósnurum, enda það samnefni
heh, bróður minn spurði mig hvert ég væri að fara í dag
ég sagði einhvað bull, því ég veit að hann vinnur fyrir þá líka!
helvítis svikarar og njósnarar á hverju fokkin strái
þetta er allt í lagi, sá eini sem kemst inn til mín er maðurinn með ljáinn
ÞIÐ MUNUÐ ALDREI NÁ MÉR LIFANDI, klukkan er kannske tifandi
en ég mun ekki gefast upp þó leyniskyttan bíði miðandi
tala við systur mína, ónei held nú síður
veit hvar þú vinnur, og að eftir samtalið að fangelsisvist bíður
sem og skringilega tilrauna-starfsemi á hausnum á mér
anal-próbin er eikkvað sem þeir munu ekki fá hér!
alla vega ekki frá mér, getiði ekki hlerað síman minn
búinn að kveikja í honum og í öllu húsinu til að spara tíman minn
hef ekki tíma til að kíkja á allt í húsinu því ég nenni´ekki að bíða
er að flýta mér að spýta út því sem ég veit því ég er þannig týpa
sem lætur ekki vaða yfir sig, sama hvað það er
alþingi eða hæstaréttur, með tæki í fötunum mínum, þess vegna er ég alltaf allsber
á varðbergi, að passa mig á njósnurunum frá Þýskalandi
búnað að myrða hálfa fjölskyldunni því hún var jú síkjaftandi
um felustaði mína ég get ekki treyst nokkrum manni
en ef ég segi etta upphátt get ég búist við fokkin banni
Fæ ekki lengur að labba um göturnar þar sem þeir fylgjast með mér
heldur er ég einangraður í mínum eigin kjallara, einn ´g sér<br><br>TuPac = Ofmetinn rappari