Ég sit inni löngum stundum, leiðist stundum/
með penna og blað ég ríf oft sundur/
mér líður eins og klukku sem er hætt að tifa/
ritstífla, hver er ástæðan fyrir því að ég ætti að skrifa/
hver er ég? ekki er ég skáld og svo sannarlega ekki tónlistarmaður/
spurningar vakna, eyði of miklum tíma í ekkert, mætti segja að ég væri of eyðslusamur/
þetta reynir allt á mig andlega sem og líkamlega, les yfir orðin ýtarlega/
kannski ætti ég að hætta þessu, kannski kaupa mér gítar eða?/

Commentið…