Klikkað session sem fer fram með hraða
rímnaflóð sem lætur ykkur kafa
Þetta er breytt session fyrir þá sem vilja vita
Þetta er feitt mission sem veldur innri hita
Ef þeir Bangsi&Jón , fíla sig í bita
smita hip hop veiruna og allt er soldið skrítið,
Vieri höndlar boltann eins og Bangsi höndlar bítið
kítið bara um hverjir eru bestir,flestir rapparana
eru hverjum öðrum verstir, gestir tónleikana
þurfa að tjilla og vera sestir, Mezzi mætir þarna
meikar eitthvað næs, og nú sumarvindur blæs
þú verður skotinn eins og gæs en nú er Amor að verki
Því sólin hitar ekki eingöngu umhverfið
líka tilfinningar stúlkna sem þýðir minna erfiði
ég serði hlutfallslega meira stúlkum um sumartímann
blómstrandi rósir vilja gefa manni símannn
svo ég geti hringt þegar betur stendur á
Þá getur hún kyngt og ég mun fullnægingu fá
en rósin visnar, þegar vetur skellur á.

Klikkað session sem fer fram með hraða
rímnaflóð sem lætur ykkur kafa
í annað skipti, með jamm Austurvelli
í apann kipti, rann eins og á svelli
pilsi lyfti og stakk þar mínum belli
haftið ryfti, komst inn í þröngan helli
öxlum ypti og kom í einum hvelli
en ég hefði viljað vera þar fram í mína elli.
En Afkvæmi Guðanna ávalt ég hrelli
með þeirri spurningu, hvort þeir halda velli?
þurfa þeir smurningu?eða er bara allt í lagi?
ég veit allavega að þeir eru í réttu fagi,
þó að ekkert THC C í þeirra þvagi
tölvunördar á kvöldin en rapparar á daginn
á Austurvelli taka völdin og væntanlega lagið
…….trallallaah…….trallallallallaahh….trallallaah….trallallallallalahh

mcSB

Listamenn sem koma fram á Austurvelli, kl.21:30 á Menningarnótt, 17. ágúst:

DJ Kári
Mc Steinbítur
Mc Mezzias
Afkvæmi Guðanna
POPFORMS (people of present forms)
Sesar Africanus (hann er einnig með í atriði á Listasafni Íslands kl. 18:00 og 21:00)
Bæjarins Bestu (betri en flestir)

Fleiri rapparar munu væntanlega bætast í hópinn,
ég hef heyrt sögur af því að
Kjarri, Einar og Beggi ætli frumflytja lag sem lofar góðu,
en síminn hjá Einari er lokaður, hringdu í mig drengur!!!


“Allir á Völlinn…..í Austri”