Laugardags kvöldið 10 ágúst n.k þá verður allsvakaleg hiphop veisla á Prikinu í boði Budweiser, Priksins og Kronik(Radio X). Kanadíski plötunsúðurinn DJ A-Trak ætlar að troða upp ásamt Dj Ben B(Forgotten Lores) og Dj Rampage.

Dj A-Trak er hluti af “The Allies” en hana skipa nokkrir snillingar ásamt Dj Craze sem er góðkunningi okkar Íslendinga, og hafa þeir sigrað liðakeppni DMC s.l. tvö ár. Dj A-Trak hefur unnið flest allar plötusnúðakeppnir er haldnar hafa verið í heiminum, ber þar fyrst að nefna Technics DMC sem er sú virtasta, en hann vann hana yngstur allra eða þegar hann var 15 ára gamall. A-Trak er ekki nema rétt um 21 árs en samt er hann að spila reglulega um allan heim og er hann nú á smá ferðalagi um Evrópu og ætlar að enda för sína hér á Íslandi.

Fjörið hefst um kl 23:00 á Prikinu og kostar 500kr inn, en veigar fylgja fyrir þá fyrstu.
Aldurstakmark: 20 ár

Þess má geta að Hip Hop þátturinn Kronik mun færast yfir á laugardkvöldið 10 ágúst frá kl 20-22 aðeins í þetta eina sinn.

Ekki missa af einum besta hiphop plötusnúð í heimi á Radio X og á Prikinu laugardagskvöldið 10 Ágúst.


Nánari upplýsingar:
www.contagiousmusiq.com
www.the-allies.com