Í sambandi við þessa rímu, mér datt hana í hug þegar ég var að hlusta á lag með Eminem (gettið hvaða lag). Og ástæðan fyrir því að ég valdi Bent er enginn, bara datt það í hug. Og eitt enn, ekkert er satt í þessari rímu svo ekki kalla mig zækó!

Kæri Bent…

ég er búinn að senda þér tvö skilaboð í gegnum huga en þú svarar ekki
er það út af mér? eða er það útaf því að vinir mínir eru líka óþekktir
kannski var bara smá galli í hugasysteminu, eitthvað bilað…
ef svo er þá reyni ég bara að senda aftur bréf til yðar…
en hvað um það, hvað segiru mar… er önnur plata á leiðinni?
skiptir engu, því í sambandi við fyrstu ég mun aldrei fá leið á henni
en já, ég er líka að vinna að plötu, fyrstu plötunni minni
og þó að hún komist ekki nálægt þinni, er þetta það bezta sem ég gert að sinni
og gettu hvað hún mun heita, ég ætla að skýra hana Beyglað
enska þýðingin á nafninu þínu Bent, flott ekki satt? því verður ekki neitað
ég las um skítkastið á þig á korkunum hjá afkvæmunum
þykir leitt að shit-talka náði að fá fólk á móti þér með klækjunum
ég veit að þú heyrir þetta eflaust á hverjum degi mar
en ég er aðdáandi númer eitt og fyrir þig ég myndi fokkins deyja mar
ég er með endalausar myndir af þér út um alla mína veggi
og bæ ðe vei, ég er líka feitt að fíla skítinn sem þú gerir með 7bergi
en já, þetta er eila allt sem ég vildi segja, vonandi sérðu þetta
endilega svaraðu, og segðu mér bara allt af létta
jæja, segi bless svo að þú getur svarað fljótar
þinn fan númer eitt, þetta er Óttar


Kæri Bent, þú ert ekki ennþá búinn að svara
ég er ekkert reiður, finnst bara asnalegt að þú skrifir ekki til baka
Okei, ég skil að þú hafir ekkert nennt að tala við mig þegar þú komst á ísafjörð
þú hefðir samt geta áritað diskinn minn einzog blaz, ég beið heil-lengi í þessari örtröð
mér finnst það soldið skítt mar, þúrt fokkin goðið mitt
ég skal drepa fólk og reisa hofið þitt, ef þú bara hlustar á orðið mitt
þú veist, án djóks þá erum við soldið svipaðir
beztir í okkar krúi og svo eru við heldur ekki litaðir
ég fíla svo vel það sem þú segir í textunum þínum að það virkar betur en sáli
þegar ég byrja að hlusta, er einzog ekkert sé að, þúst hvað er vandamálið?
sko, textar þínir hjálpa mér og leiða mig meira að segja að ljósinu
ég er meira að segja með tattú sem segir Bent á hægra brjóstinu
kærastan mín er samt soldið fúl, því ég tala soldið mikið um þig
en hún bara skilur ekki hvað ég hef í þér fundið
því það sem þú segir er “ríl” og ég ber virðingu fyrir þér út af því
því í tónlist ert þú uppreisnarmaður einzog Muhammeð Alí
þú verður að svara mér, bara örstutt boð! ég bið þig!
ég er lang-stærsti faninn, alltaf á tónleikum alveg upp við sviðið
plíz koddu með svar, ég er án efa sá stærsti fan sem þú gætir misst
en enginn þrýstingur, ég bara vona að þú svarir sem fyrst
P.S það væri líka m4d kúl ef við gætum einhvern tíman hist

Kæri herra allt of merkilegur til að kíkja í skilaboðaskjóðuna
langar þig að svara, FOKK JÚ það er orðið allt of seint núna
þetta verður það seinasta sem ég á nokkurn tíman eftir að senda þér
fokkin 6 mánuðir, ekki einu sinni orð, svo ég mun láta þetta enda hér!
ég veit að þú fékkst hin tvö boðin, ég double-tékkaði á öðrum notendum
þannig ekki reyna að afsaka þig með því að þessi póstur hafi aldrei verið sendur
ég er í tölvunni núna, að skrifa seinasta bréfið
búinn með 3 kippur, og mun senda þetta út um allt netið!
hefuru heyrt lagið Villtu með mér vaka, þar sem einhver gaur var draugur
og vildi fá kærustuna til að koma með sér, svo hann yrði ekki einn og aumur
þetta er soldið líkt því núna sko, því ég er að fara að myrða mig
og mun myrða gelluna mína í leiðinni, bara til að pirra þig
þér að kenna að tvær manneskjur munu deyja í nótt… svo
þú skalt passa upp á það næst, þegar einhver fer að senda þér skilaboð
og já, verð að bæta þessu inn í, ég reif burt allar fokkin myndirnar
það rignir svo mikið núna að þú gætir eflaust fokkin synt hingað
ég dýrkaði þig Bent, við hefðum getað orðið fokkin beztu mátar
en þú klúðraðir þessu fokkin viljandi! ég spyr þig, ertu með fokkin hjarta?
ég vona að þú pælir, kemst að því hve ógeðslegur þú ert og ælir
getur ekki sofnað á nóttunum út af væli, í sjálfum þér í draumum og þú vaknar og skælir
sérðu þetta, ég passaði upp á það að nota rímorð sem þú hatar!
vegna þess að þegar ég pæli í því, þá er ALLT rappið þitt glatað!
og ég fór með mína elsku út í garð, ekki í rauðhólana
þurfti ekki neina fokkin skóflu eða kókaín, því það er ekki einzog að ég gróf hana
búinn að skera mig núna, og ýti næst á senda
ég vona bara að þessa skilaboð komist út á enda…