bítin fer í gang ég og voffi hlustum
að hlusta á rapp… eh, við eyðum saman öllum okkar stundum
horfi á Rottweiler hundinn dilla skottinu
því einzog ég, hann fílar fólk í hip-hoppinu
mig langaði að hitta seppa, til að nálgast hann ég klæddi mig einzog stelpu
varð alltof fullur, vaknaði daginn eftir með tattoo sem sagði “Seppi er beztur”
ef ég hözzlaði, og stelpan myndi biðja um pening ég yrði að finna aðra hóru
því ég keypti mér kassagítar og míkrófón á 17 þúsund krónur
ég er frægur… en hataður núna það verður að duga
Bent var að dissa mig persónulega, ég er ofurhugi á huga
Dagurinn í gær var m4d, fyrsta partý mitt að veruleika orðið
en þá kom Blaz og hirti af mér orðið og skyndilega var mér ekki boðið
þá beið ég þar til allir dóu og fóru að sofa
þá læddist ég einzog vofa, ýmindaði mér djamm og var áfengið að skoða
í hip-hopi er ég fyrstur með fréttirnar því ég les sánd
The Forgotten Lords er að gera lag með írafár!
ég vil vita hvað þeir búa, því þar finn ég hip-hop liðið
þeir eru búnir að vera þar í sjö ár, en ég veit ekki hvernig húsið er á litin?
hvernig get ég verið í hip-hoppi ef ég veit ekki neitt um svona hluti
ég er ekkert fífl, ég er alltaf að keep it ríl
finna minn eigin stíl, shit… þú ættir að sjá mig á rúntinum á flottum blæjubíl
og já ég er með feitan maga en ég er líka með feitar rímur
setti letrið á Extra Bold! svo þetta eru m4d feitar línur