nú hef ég verið að lesa umtalið í kringum síðustu rímuna hans PrinceX a.k.a “Brenndu inni tík” og hefur það orðið einzog venjulega allir á móti PrinceX… ekkert slæmt við það þannig séð, en það sem mér finnst fyndnast er hvað hann PrinceX er búinn að fara illa með ykkur í rauninni.

Hafið þið ekki fattað þetta ennþá, hann mun aldrei nokkurn tíman taka eitthvað upp, hann skrifar einhverjar rímur og sendir þær inná huga einfaldlega til þess að reyta annað fólk til reiði, því honum finnst það fyndið.

Og nú seinast, kemur x23x sterk inn í leikinn og heldur með PrinceX og þá eru allir vissir um að hún sé hann. En ég veit að svo er ekki, en ég veit líka að PrinceX er jú með annað notendanafn og hefur sá rímnasmiður fengið soldið betri dóma. Það finnst mér skrýtið.

En það er nú flest allt bara fyndið, en það sem mér finnst ekki eins fyndið er að út af honum PrinceX okkar þá hefur Ísafjörður orðið mjög svo hataður, sem er einzog ég sagði fyrr… ekki sniðugt.

Þannig að bara haldið áfram að “bögga” PrinceX, sama er mér… en látið minn ástkæra heimabæ í friði. Og ástæðan af hverju ég setti bögga innan gæsalappa er vegna þess að þetta bögg ykkar böggar hann ekkert.

Og já eitt enn, ég hef alls ekkert á móti ykkur fólkinu sem er að dissa PrinceX, þið eruð flest fín. Sérstaklega Rebel|Ins sem á flottustu spælingu sem ég hef nokkurn tíman séð… “BOO BOO HEAD”. hehehehe.

þannig bara skemmtið ykkur áfram við það að rífast við hann PrinceX, og PrinceX skemmtu þér við að rífast við allt fólkið, og ég mun skemmta mér við það að fylgjast með.

Peace! :)