Ég ákvað að pósta víst líka erindinu mínu úr Öryrkjabandalaginu með AG og Dóra.

Sumir rapparar eru varla að segja skít
rappandi ofnotuð konsept með þetta sama þreytta rím
og skapa meira bíf til að skapa eitthvað nýtt
en eru eins og kennarara í verkfalli, því þeir hafa engann stíl
og þetta er ekki bara í Reykjavík, heldur á landsvísu
og þora ekki að frístæla nema á rassgatinu í partýum
því að rapparar eru feimnir á Íslandi
og frístæla bara þegar að þeir eru í glasi
en veistu hvað? ég er orðinn þreyttur á því drasli
því flestir þeirra eru hreint ekki rímandi
og verða reiðir og rífa sig þegar að þeir lenda í skítkasti
því öryrkjabandalagið leggur i einelti í battli
svo reyndu ekki að sína þig þegar þú sérð mig á sviði
nema að þú viljir hafa þig að athlægi, hálfviti
því að ég ríf þig í tvennt, þú veist að ég mun brjóta mækinn
því mín skoðun er alltaf fyrir neðan beltisstað eins og hjá kvensjúkdómalækni
svo æfðu þig heima, og farðu svo að rappa
og ef þú dissar mig getur þú reiknað með því að þú fáir það borgað margfalt
svo áður en þú segir eitthvað hugsaðu rökrétt
leggðu saman tvo og tvo og ekki deila við 7berg