Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til að frístæla
Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til að hætta að kístæla
Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til bitz-slappa og átbattla
Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til að chilla hér og rappa ha?

Þetta byrjar rólega og það eina sem mar gerir er að hlusta
svo kaupir mar fleiri diska og fer að syngja með og muldra
hei… þetta er ekkert mál ég hlýt að geta gert þetta líka
og fyrst er mar dissaður af rokk-gaurum sem ekki skítin fíla
en mar heldur áfram að spýta, ríma og svo skíta yfir slíka
fávita sem kunna ekki mína tónlist að meta
en ég feta mig áfram og finn stað til að setja
mínar rímur þar sem allir sem vilja geta skoðað þær
en þá koma hip-hop gaurarnir og dissa mig því ég er ekki nógu fær
flæðið ekki kristal-tært, en ég mun ekki hætta
hækka standardinn, fækka bullinu og koma með textan bættan
fyrsta ríman mín, étin upp og mínir foreldrar dissaðir
svo kem ég aftur og þeir verða fokkin hissa á því
að mér er skítsama hvað þeim finnst, ég mun ekki stoppa
ég mun toppa þig, toppa mig, dissa nokkra og opna mig
leyfa ykkur að sjá, leyfa ykkur að finna fyrir mér
áður en ég verð frægur og mun standa og lesa yfir þér
óstöðvandi hip-hop kraftur sem stöðvast ekki og verður aldrei stopp
held áfram meðan þú ferð afturábak, frá klósetti niðrá kopp

Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til að frístæla
Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til að hætta að kístæla
Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til bitz-slappa og átbattla
Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til að chilla hér og rappa ha?

Segji hér sannleikan, rapparar verða betri með æfingu
en með minni fyrstu var sagt að ég næði engu
myndi aldrei verða betri, skellt á mig alhæfingu
þeir vonuðust um að ég myndi hætta en þeir ráða engu!
fylgist með gagnrýni frá fyrstu til síðustu
Ömurlegt!! Hættu!! og kíkið svo á nýjustu!
flott ríma, endilega haltu áfram á sömu braut
hélt það líka, þið þarna haters mellur ég leysti þessa þraut
frá hötuðum, nóneim huga-rappara
yfir í ekki hataðan noneim-hugarappara
en fyrir allt respectið sem ég er búinn að fá… ég þakka bara
en fyrir þá sem vilja ennþá að ég hætta… þá verðið þið bara að hafa það
því að það eina sem ég hef núna fyrir stafni
er að sýna fram á að ég get flætt einzog ég væri úr vatni
flæðandi rímur renna frá mér í mækinn í gegnum leiðsluna
beint í búmm-boxin og út um græjurnar og beint í veisluna
held uppi stuðinu fram á rauða nótt í 12 tíma frí-stæli
flæði gæði einzog væri sæði hjá gaur með klámblaði í ró og næði
en ég rappa um það sem ég vil verða ekki það sem ég orðinn
því orðaforðinn dugar ekki svo ég legg spilin mín á öll borðinn
og soga í mér vitneskju annara miklu betri rappara
en ignora þá sem dissa mig en hafa flæðið slappara

Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til að frístæla
Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til að hætta að kístæla
Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til bitz-slappa og átbattla
Fæ ég leyfi? fæ ég leyfi til að chilla hér og rappa ha?

ríman að verða komplít, en mig vantar bít
því ég spýt ekki skít einzog vókal only tík
ef þér finnst þetta vera orðið gott, hlustaðu lengur því það verður betra
ég hef mikin tíma til að bæta mig enda bara sautján vetra
þess vegna, gefst ég aldrei upp og hef hugan við verkið
því ég er alveg að ná þessu, alveg ná nógu miklu respekti
en það er erfitt, að vera einmanna internet emsí
svo ég þeyti áfram feitri rímu sem verður lengri
með tímanum, því ég bæti ávallt við rímorðum
áður en þetta fer úr skorðum, einzog ég gerði ávallt forðum
en ég forða mér frá þannig bulli, rugli
með því að fljúga í burtu einzog ég væri orðin að fugli
fela mig einzog ég væri orðinn lítil rotta
Nei FOKK ÞAÐ, ég kem hérna hreinn fram ég heiti Óttar
og ef þig langar að dissa mig, battla mig whatever
hvað sem er, allt er leyfilegt, allt fer hér
komdu með það bezta sem þú hefur ég mun standa hér!
og ef þú vinnur mig í battli mun ég koma aftur og feisa þig
reyna aftur, taka þig svo illa út ég mun meiða þig!
með rímum því það þetta er baráttan um það að fá að ríma
og ef mér text að vinna þá verður það sko sæl gleðivíma!