Ég var að hlusta á rímnamín og varð var við sná diss í hina og þessa átt. Þetta eru samt bara svona léttar athugunarsemdir hjá þessum ágætis tónlistarmönnum.

Afkvæmi Guðanna - Upp með hendur
Seppi;
“Er nóg að segjast vera rappari? nei ég segjist líka vera með sjónvarpsþátt”
Þetta er augljósislega diss á Erp eða Blazroca eða J-Naz

xxxR - Rabies Canis
BlazRoca;
“þú ert ekki með feitar rímur, þú ert bara með feitan maga”
Þarna sér BlazRoca um að viðhalda beefinu á milli A.M.M og xxxR. Eins og margir vita er Magze svona létt búttaður.


Forgotten Lores - Þegar ég sé mic
Byrkir B;
Segjið að ég eigi að hætta að keep it ríl/ Fífl lítið í eigin barm og finnið eigin stíl"
Gæti verið diss á BlazRoca þar sem honum finnst gaman að segja fólki að hætta að keep it real, þetta diss er reyndar vafasamt.