Ég keypti mér XXXR diskinn fyrir jól, af því að hann fékk svo góða dóma og vegna þess að allir voru að segja að hann væri svo góður. En viti menn, ég hef varla hlustað á hann síðan ég keypti hann! Mér finnst textarnir ÖMULEGIR og geðveikt einhæfir. Í fyrsta lagi er þetta ekki einu sinni almennilegt rím! Bara sniðrím eða hálfrím (grímu-mínum - svipuna-gripina) Bent rappar um hvað hann sé LaNg BeStUr og FrÁbÆr og hvað erfitt sé að ábattla hann í lagi nr. 1, 2, 3, 5, 8, 9, 10, 13 og 14. HVAÐ ER AÐ???? Er ekki hægt að finna eitthvað frumlegra en að hafa það fucking sama í HEILUM 9 lögum?!?!?!? Erpur tala um mömmur í lagi nr. 1, 2, 5, 10 og 13 Þetta er ekki einu sinni fyndið! Í alvöru REYNIÐ að finna eitthvað annað til þess að rappa um en mömmur, brund, píkur og annað í þeim dúr! Eftir 5 diska verður KANNSKI “tónlistin” hjá þessari hljómsveit viðunandi