Jæja það virðist vera sem að fólk haldi að ég geti ekki rappað.


Ég ætla að segja ykkur söguna af Jóni Sigurðssyni
Þessi ungi maður á ca. sjöhundruð vini
Allir í krossinum alveg eins og hann
Eins og Palli Rósinkrans hann ljósið eina fann
14 ára gamall strauk hann að heiman
Foreldrunum sama létu götuna geima hann
Pabbinn alltaf fullur ef hann var ekki á sjónum
Mamman spilafíkill, sem að reið fyrir krónum
Núna hefur hann það gott, á íbúð í blokk
Er virkur í söfnuðinum, semur kristilegt rokk
Fyrirmyndar maður, mundu flestir halda
En hans félagslegu aðstæður þær krefjast sinna gjalda
Hann er föðurlandsvinur vill hann sjálfur meina
Hetjan sem að stendur, vörð um Íslandssteina
Fáfræði hans ætlar að verða honum að falli
Útlendingahatrið er hans eini sanni galli!

Á yfirlýsingum er ei skortur hjá Jóni
En sambandið við raunveruleikann er í tómu tjóni
Hann þolir ekki Rússana, Pólverja og Letta
,,Það eina sem þeir kunna er, skattkerfið að pretta!
Þeir taka af okkur störfin og skammast sín ekki”
En fyrir þessar skoðanir bíður hann álitshnekki
Það vita flestir sem að þekkja fólk frá þessum þjóðum
Að vandfundir eru slíkir vinnumenn á norðurslóðum
Hann hatar Araba og miðausturlandamenn
Sem trúa ekki á guð og rændu tyrkja-Guddu í den!
En mikið mundi honum bregða og reka sig á vegg
Ef hann vissi að Jesú sjálfur, var arabi með skegg


Jón Sigurðsson forseti þjóðernissinna
Burt með þessa letingja sem nenna ekki að vinna
Hann hatar Araba, Negra og Tælendinga
Ísland fyrir Íslendinga


Hann fyrirlítur negrana í Breiðholtshverfinu
Sem stela íslensku stelpunum og lifa á kerfinu
En hvernig er hægt að lifa á kerfi rotnu innan frá
Í landi þar sem kvótakóngar græða á fingri og tá
Og ef að Jón væri ekki svona fullur af hatri
Væri hann enga stund að höstla aríamellu í snatri
En allra mestan viðbjóð vekja hjá honum Jóni
Súlustaðatæpíur sem lifa bara á grjóni
,,Ef þær væru ekki hérna væri ekkert aids
og án spotlightgrjónanna, engin gay parades!”
Já hann Jón hefur greinilega aldrei heyrt um smokkinn
Kynnt sér austurlenska matseld og skroppið í kokkinn
Og ef hann væri ekki svona þröngsýnn og kristilega fræddur
Vissi hann að enginn þarf, við homma að vera hræddur
Því hvað eru hundrað hommar sem búa við Íslandsstrendur
Á við ofsatrúardjöful sem er andlega skemmdur


Jón Sigurðsson forseti þjóðernissinna
Burt með þessa letingja sem nenna ekki að vinna
Hann hatar Araba, Negra og Tælendinga
Ísland fyrir Íslendinga


Það má þó ekki gleyma að Jón hatar ekki alla!
Að hans mati er einn kynstofn sem er laus við alla galla
Sá er æðri öllum og öðrum ætti að stjórna
Til að halda honum hreinum varð Gyðingum að fórna
Hinn germanska stofn, er Jón að tala um
Sem með hugviti og líkamlegu yfirburðunum
Mun leggja undir sig heiminn og stjórna á endanum
Aríar koma frá Abraham en negrar öpunum.
Því miður hefur hann Jón, ekkert lært um sögu heimsins
Rússar voru fyrstir til að senda mann til geimsins
Aríarnir töpuðu stríðinu í Víetnam
Og allir menn með viti fyrirlíta Ku Klux Klan
Í flestum íþróttagreinum hafa svertingjar yfirhönd
Og heimasvæði Abrahams voru miðausturlönd
Albert Einstein sjálfur, var kominn af Gyðingum
Og Adolf Hitler náði ekki að stjórna heiminum!
Svo ef, einhver er í vafa um hvort útlendingar eigi
Rétt á því að búa hér, þá strax ég við þá segi:
,,Takið vel á móti þeim sem hérna vilja vera
betra Ísland hjálpa þeir, okkur við að gera
Fáum Araba, blökkumenn og Tælendinga
Til Íslands fyrir Íslendinga!

Jón Sigurðsson forseti þjóðernissinna
Burt með þessa letingja sem nenna ekki að vinna
Hann hatar Araba, Negra og Tælendinga
Ísland fyrir Íslendinga

Kveðja mc Brútus