Þetta er ein af allavega tveim rímum úr lagi sem við <a href="http://kasmir.hugi.is/EFFi“ target=”_blank“>Effi</a> erum að vinna að. Okkur vantar bara taktasmið til að búa til takt undir þetta hjá okkur en félagi okkar er að spá í að slást í lið með okkur.

Ps.
Við köllum okkur Ásana (Ásarnir).

PPs.
Þetta er ekki diss á neinn sérstakan, bara lélega rappara yfir höfuð:

Ég hata slappa rappara sem halda þeir séu góðir
Þeir halda ekki takti og segjast vera um hiphop heiminn fróðir
Reyna að framkvæma mikið flæði en eru í lokin móðir
Þykjast vera voða frumlegir og séu að fara ótroðnar slóðir
Þessir aular rappa bara um eitthvað sem skiptir engu máli
Eru jafn lost og árabátur í miðjum Atlantshafsáli
Ásarnir voru um daginn að battla Öbba heima í Hveragerði
Eftir það rúst hefur enginn rappari viljað vita neitt um hans ferðir
Hann bjó til orð á staðnum og maður átti að fatta þeirra merkingu
Sagðist geta frírímað en gat ekki gert skiljanlega setningu
Samt lifir hann enn í þeirri blekkingu að hann geti rappað
En Stewen Hawkins gæti svona rappara niður stappað
Þeir hafa engann metnað til að verða betri en þeir eru
Þeir eru með leiðinlega rödd eins og vöðvabúnt á sterum
Líkt og Jóhanna garga þeir: ”Minn tími mun koma!“
En þegar á að rappa standa þeir á gati eins og fótalaus kona
Þeir reyna að stíga upp en eru stappaðir niður
Þegar það er búið að rústa þeim væla þeir ”FRIÐUR“
En við segjum ”Því miður, það er ekki Ásanna siður“
Því svona aumingjum er ekki veittur neinn griður
Þeir ættu að snúa sér að öðru til dæmis frímerkja söfnun
Því enginn maður með sóma þyldi þessa höfnun
Sem þeir verða fyrir í hinum íslenska hiphop heimi
Stundum óska þess að þeir snerti báða pólana á rafgeymi



Ég á eftir að fínslípa þetta og jafnvel að bæta við…<br><br><a href=”http://kasmir.hugi.is/Hvati“ target=”_blank">Hvati</a