Þetta er texti við Gangsta lag sem að ég og Bent gerðum. Þetta er svolítið gamall texti en út af því að það er í tísku að dissa löggunna þá læt ég hann flagga.

Mitt nafn 7berg ætti að vera orðið þekkt hjá lögreglunni
þar er ég þekktur sem krimmi en í raun og veru veit hún lítið um mig
og þegar að það kemur að afbrotum eru mér enginn takmörk sett
og þegar ég sest undir stýri hef ég ekki alltaf beltinn spennt
“Ertu að segja mér að þú brýtur umferðalagabrot” ég er alltaf að því
stundum keyri ég á 60 þó það sé 50 km hámarkshraði
og þegar ég fer niðrí bæ og á erfitt með að finna frítt stæði
þá legg ég í eitt með gjaldskyldu, en sleppi að borga í stöðumælin
lög og reglur, eins og mér er ekki sama um þann skít
og ég sýni það með því að keyra á nagladekkjum langt fram í apríl
ég ráfa á milli listaopnanna bara til þess að komast á frítt fyllirí
fer svo á skemmtistaði, en nota ekki mín skilríki
og þó svo að ég sé ekki með aldur, versla ég samt á barnum
ég fæ mér líka oftar en einu sinni á matarkynningu í Hagkaup
og á Subway fæ ég áfyllingu á kóki, mér er sama þótt ég verði böstaður
ég fer svo í Endurvinnsluna með dósir, en lýg dósafjöldanum
ég kemst ekki alltaf upp með það við þann glæp er ég stundum náður
þá græði ég bara pening á því að kópera klám og sel það ungum strákum
ég sker sjálfan mig og gorta mig á þessum stungusárum
þá sjá líka allir sem ég hitti hvað ég er fokking úturharður.

SjúkiPúki.