Kvöldin eru kaldlynd úti á nesi,
kafaldsbylur hylur hæð og lægð,
kalinn og með koffortið á bakinu
kem ég til þín segjandi með hægð


Spáðu í mig,
þá mun ég spá í þig.
Spáðu í mig
þá mun ég spá í þig.


Nóttin hefur augu eins og flugan
og eflaust sér hún mig þar sem ég fer
heimullega á þinn fund að fela
flöskuna og mig í hendur þér.


Spáðu í mig,
þá mun ég spá í þig.
Spáðu í mig
þá mun ég spá í þig.


Finnst þér ekki Esjan vera sjúkleg
og Akrafjallið geðbilað að sjá?
En ef ég bið þig um að flýja með mér
til Omdúrman þá máttu ekki hvá.


Spáðu í mig,
þá mun ég spá í þig.
Spáðu í mig
þá mun ég spá í þig.


Kvöldin eru kaldlynd úti á nesi,
kafaldsbylur hylur hæð og lægð,
kalinn og með koffortið á bakinu
kem ég til þín segjandi með hægð


Spáðu í mig,
þá mun ég spá í þig.
Spáðu í mig
þá mun ég spá í þig.

SNIÐUGT!!!!!!!