ég veit ekki hvert ég er að fara/
af hverju geri ég það sem ég vil ekki/af því bara/
ég finn ekki betri ástæðu en það/
ég veit hvað ég vil gera en veit ekki hvernig á að fara að/


því það er eins og það sem þú vilt sé alltaf ómögulegt/
að læra að gera leiðinlega hluti er alltaf leiðinlegt/
þarf ég að gera það sem aðrir búast við af mér að gera/
á meðan mér langar að vera í friði, látiði mig vera!/
má ég ekki sitja heima og gera mína eigin tónlist/
mér er sama þó ég ekki foreldrum mínum þóknist/
þetter mín list, það sem ég var fæddur til að verða/
ef þau bara hlustuðu á mig/ þá gætu þau öll séð það/
þú getur kallað það örlög eða vilja/
allt frá bernsku alltaf sama svarið þegar þau spyrja/
hvað þarf til að þið getið lifað með draumum mínum/
er ekki nóg að ég hlusti bara á hiphop og svari spurningum með rímum/
fæddur með hæfileika til að leika mér að hverju einasta orði/
endalaus minn orðaforði/ skrifa aðra rappara undir borðið/
allir halda sjálfa sig á toppnum í þessu geimi/
eins og í matrix/sjá þeir ekki að þeir lifa í draumaheimi/
halda að til að rappa þurfi þeir að leika svertingja/
allir þessir hvítu thug rapparar kalla hvorn annan niggara/
því þeir vita ekki hvert þeir eru að fara/
og ekki þú heldur/svo svaraðu eins og ég: af því bara /