Á mínu stutta lífi hef eg lent i öllu
en Það koma tímar sem við öll föllum./
ég er komin til að segja hvernig mer liður
flestir þurfa berjast í stríðu og blíðu./
en þú ert sú allra sterkasta
og alveg lang-lang sú bestasta
í þessum heimi, kom sá og sigraði.
ef þú særðir einhvern var það aldrei viljandi/
þið sem viljið halda það, stoppið þarna
því við sendum þa beint til fjandans./
Langaði bara segja þér,
bara svo þú sérð./
hvað þú skiptir mig miklu máli
en á himnum mun ég pottþétt sjá-þig/
Hugsa til þín frá degi til dags
ég sakna þín, þú varst real eins og þú varst/

Chorus:

þú vissir vel hvaða veg þú áttir að ganga
vissir líka vel með hverjum þú áttir að hanga
vegurinn gekk lengra en lífið var sett á stopp
þú varðst fórn Guðs, því þú hljópst ekk-á brott

ung og falleg þú virkilega varst
áttum kannski erfileika en ég elska þig samt/
brún augu og nokkrir dökkir lokkar
lýsir þér best, því þú ert engillinn okkar/
lífið er svo oft ósanngjarnt
þú varst tekin svo ég hugsa margt
afhverju þú? afhverju núna? allt svo svart
það er svo stutt síðan þú varst hér og allt var svo bjart/
svo kemur þetta kuldalega myrkur
og mér finnst ég einhvern veginn sviptur/
en englar eiga víst heima á himninum
horfi til himins og sé andlit þitt í vindinum/
svo ég veit þú ert á betri stað núna
vona drottinn sé góður og þú fáir loks að kúra/

Chorus:

ríki guðs er paradís og þú varst send þangað
veit það fyrir víst, þó mig langi oft að gráta
því þú varst eitt af börnum drottins
en vona þú hvílir nú í friði loksins


vorum kannski ekki skyld en þú skiptir mig máli
þegar þú fórst, komst ég virkilega ekki hjá því
að gráta, og það var erfitt að þerra tárin
því ég hélt alltaf ég myndi aftur sjá þig/
sorgin er erfið, en ég virkilega veit
að þér líður betur núna því ég veit hvernig þér leið/
þú yfirgafst okkur í mars, þann tuttugasta-og-þriðja
ég trúði ekki fréttunum, kraup niður og fór að biðja
fannst þetta ekki rétt, og var bara ekk-að skilja
reyndi að tala við sigga en vissi ekki hvar eg ætt-að byrja/
en vegir guðs eru sannarlega órannsakanlegir
lífið er ósanngjarnt sama hvað fólk segir/
fengum okkur tattú þér til minningar
þú varst perla sem skapaðir miklar tilfinningar/
skapaðir þér pláss hjá mér við hjartastað
við gullna hliðið elskan ég sé þig pottþétt þar/

Chorus:

áttum góða tíma en nú er tími til að kveðja
vissi ekki hvernig svo eg tók bar-upp penna
hlustaði á hjartað og hélt bara áfram að semja
taktu frá pláss þegar ég kem og vertu samferða
“Only God Can Judge Me - Tupac Shakur”