Ákvað að breyta aðeins seinna versinu í textanum fannst það koma betur út svona….

Biggi Em!

Verse 1:

Lífið erfitt þar sem allt snýst um söluna
hart stríð þar sem ekkert útskýrir kvölina
engin vorkun því ég lagði sjálfur upp í förina
leita í efnin, því ég finn oftast svörin þar
oft liðið illa og oft verið stutt í snöruna
en aðrir dagar betri og jafna út stöðuna
frumlegur höfundur með eitraða textana
sama hvað ég tek að mér, já vinn ég flest-alla/
22gja, frá tvö-hundruð-og-tuttugu
orðaforðinn góður en töluvert skítugur
sjáður hvernig eg er rétt rúmlega tvítugur
fæddur sigurvegari, hef aldrei verið síðastur
ekki sótt stúdíó, en það kemur allt með tímanum
einkum fresh þegar ég fokking kasta frá mér rímunum
heitur gaur líka þar sem er umkringdur píkunum
en skellum í viðlag og hækkum í beat-inum/

chorus:

ferskur gaur, með ferskar rímur
harður gaur, með harðar línur/
skemmdur gaur með skemmda hugsun
hvít derhúfa og víðar buxur
ekkert tan og enginn hlýrabolur
bara alvöru maður með sína-sterku-skoðun/

Verse 2.

Ég er mættur hér til að setja punktinn yfir i-ið
ætla að gera íslenskt hiphop að mínu sérsviði
villtu orðastríð? þá er auðvelt að finna-mig
átta-sex-sjö-sjö-sex-tuttugu er númerið
hvar og hvenar sem er get ég sigrað þig
ég geng oft of langt og orðin geta verið særandi
var aðeins 12 ára þegar ég fyrst kynntist hip-hopi
varð ástfanginn, og sá strax ég vildi verða rappari
síðan þá hefur penninn sífellt átt við blekleysi
skriftir gengu fyrir, því ég hélt að það leysti-mig
gerði margt gott en samt yfirgnæfði vonleysið
efnin tóku yfir, við það hvarf allt mitt sakleysi
fann mikið til því vanlíðan leiddi mig
en sjálfsvorkun er vonlaus og mikill veikleiki
leitaði í trúnna og vill sjá hvert hún leiðir mig/

chorus:

ferskur gaur, með ferskar rímur
harður gaur, með harðar línur/
skemmdur gaur með skemmda hugsun
hvít derhúfa og víðar buxur
ekkert tan og enginn hlýrabolur
bara alvöru maður með sína-sterku-skoðun/
“Only God Can Judge Me - Tupac Shakur”