Íslenskt hiphop er það eina sem að ég vill heyra
það eru gæðin einu sem ég hleypi í mitt eyra
málið er að hljóðin hafa sál þau eru eitthvað meira
þau representa stíl, tileinkun og svo mikið fleira
ég þarf ekki að fara útá land að keyra til að upplifa fegurð
vegna þess að herbergið mitt er uppfullt af íslenskum hiphop lögum
eina sem vantar eru íslenskar vínil plötur
þetta kemur, en lifi fyrir menninguna, hiphop er í funa
ég vill líkja þessu við sinubruna
Afkvæmi Guðanna, Rottweiler og Skytturnar
allir saman duglegir með blekbytturnar
að halda þessu uppi er ekki dans á rósum
en ef ekkert er gert þá frjósum
við fastir við jörðina og hiphop fölnar
em mín sanna ást mun aldrei kulna hún mun lifa
hvernig sem viðrar, hvað sem á gengur þá mun ég skrifa
stanslaust eins og tíminn mun minn penni tifa
ég hripa niður rímur til að halda í hefðina
fólk sem hlustar á allt annað berst við hægðatregðuna
það á erfitt og þekkir ekki tileinkun og sanna list
og þegar íslenskt hiphop ber að dyrum þá ákallar það Jesú Krist
nú kveð ég með reisn, Infinite ég dey einn
með íslenskt hiphop í huga


peace