var að hætta með kærustunni minni og skrifaði smá texta.. er kannski smá bitur en fuck þannig er það bara :P

Hún fór, já hún hvarf og eg er einmanna
kannski fullt af fiskum i sjonum en eg veiddi þennann/
virðist hafa misst hana aftur í ánna
þar syndir hun með öðrum og mér sárnar
sál mín án loga, allar tilfinningar farnar
bæli allt niður en það er eitthvað sem vantar/
ástin er svo ljúf en samt svo grimm
það var alltaf bara hún en núna er allt svo dimmt
allt gekk svo vel og allt virtist svo fínt
veit ekki hvað skeði vild-að ég gæti séð það endursýnt/
þú varst allt það sem mig þráði
vissi það uppá hár strax og ég sá-þig
en það var eitthvað sem slökkti ástarbálið
ég brenndist illa og sleiki enn á mér sárin
vildi óska þess við gætum leyst vandamálin
en það eina sem kemst að hjá mér eru tárin/
nú er flaggað í hálfa stöng hér heima
reyn-að dreifa huganum en það er erfitt að gleyma
hélt þú værir sú eina og ég var hættur að leita
ástin er blind, treystu mér elskan ég veit-það/

þetter svo sárt og svo mikill söknuður
virtist góður draumur en svo er eins og við vöknuðum/
ég vild-að við gætum byrjað uppá nýtt
mótað ástina aftur, eitt tækifæri enn plís
án þín rennur blóðið mitt ekki! það frís
er ekki sami maðurinn það er víst/
manstu hrifninguna á laugavatni?
ég vill að sú tilfinning aftur vakni/
við áttum svo góðar stundir saman
engin rifrildi bara gleði og gaman
eitthvað skeði og þá breyttist staðan
vill þú vitir að það þykir mer glatað ;( /
þú varst sú sem ég ætlað-að hald-í
því ég hélt virkilega að það væri framtíð/
átt allavega pláss á mínum hjartastað
getur alltaf leitað til mín sama hvað!
því hjá mér áttu alltaf samastað
rúmið svo tómt þegar ég leggst einn í það/
ég elska þig sandra meira en heiminn
hugsa ætíð um þig og líka þegar mig dreymir/
allavega dúllan mín hugsaðu málið
því þú ein getur þerrað á mér tárin :*
“Only God Can Judge Me - Tupac Shakur”