——————————-ÞEIR——————————————–
Flestir segja mig geðveikann, ég sé enginn venjulegur maður
er ég sá eini sem sér þetta, eða er ég bara taugaveiklaður
ég finn fyrir þeim fylgjast með, hvert sem ég fer
og ég veit þeir eru þarna úti, að fylgjast með mér
þeir eru allstaðar, ég næ aldrie að felast
sama hvað ég reyni, fæ ég engann til að trúa hvað er að gerast
bak við luktar dyr, þeir ákveða framtíð okkar allra
komast smá saman á topinn meðan ríkisstjórnir falla
gegn um sjónvarp, síma og tölvurnar þeir afla upplýsinga
enginn veit hvað er að gerast svo enginn þarfnast útskýringa
og þeir fáu sem spurja spurninga
fá engin svör og eru sendir þegjandi og hljóðalaust í gröfina
enginn veit hverjir þeir eru og enginn veit þeir eru til
milli raunveruleika og sjónhverfingar eru hárfín skil
svo flestir taka því sem rugli sem enginn tekur alvarlega
en ég veit þeir eru þarna úti ég hef sjálfur séð það
þetta eru ekki innantómar samsæriskenningar
þetta eru stjórnmálamenn, forsetar og kennarar
sem forrita okkar hugsanir frá deginum sem við fæðumst
á þeirra uppspuna og lygum allt frá fæðingu við nærumst

Þeir eru allstaðar og hvergi á sama tíma
þeir sjá allt sem þú gerir, og þeir eru að hlusta þegar þú
talar í síma
þeir vita allt, sjá allt og heyra hvað þú ert að segja
en ef þú heyrir í þem munu þeir fá þig til að þegja

Þeir vilja halda okkur öllum í myrkrinu
fela undirmeðvituð skilaboð í myndum og á netinu
í gegnum útverpssendingar rugla í okkur hugsanir
helduru að þú ráðir einhverju, það eru þeir sem taka allar ákvarðanir
um hvert þú ferð, hvað þú sérð og hvað þú lærir
ef þeir vildu myndiru ekki einu sinni vita hver í fjandanum þú værir
svo ef þú veist hverja ég er að tala um
skaltu loka þig inni, slökkva ljósin og fela þig fyrir umheiminum
því stóri bróðir hlífir engum sem áttar sig á stöðu málsins
og gæti komið upp um raunverulega stöðu mannkyns
við erum öll flækt í lygavef sem þeir hafa spunnið
við verðum að berjast á móti því þeir hafa ekki ennþá unnið
svo aftengið símana, hendið tölvunum og slkkvið á sjónvarpinu
þá eruð þið komin skrefi nær takmarkinu
brennnið blöðin, treystið engum og látið sannleikann ganga til annara
það ætti enginn að reyna að stöðva upplýsingu mannana
en fyrst þú heyrðir þennan texta eru þeir á eftir fleirum en mér
þú munt brátt komast að því er þeir banka á hurðina hjá þér
því þeir vita á hvað þú ert að hlusta og hvað þú ert að gera
fyrst þú heyrðir þetta lag ertu líka búinn að vera

Þeir eru allstaðar og hvergi á sama tíma
þeir sjá allt sem þú gerir og þeir eru að hlusta þegar þú
talar í síma
þeir vita allt, sjá allt og heyra hvað þú ert að segja
en ef þú heyrir í þem munu þeir fá þig til að þegja