Ekki fyrsta atrenna ekki halda að ég sé mannvera/
ég er göldróttur og hvað-með-það ég skal-gera þig alelda/
er ekki að fokkin spar-etta nei, skýt þig á bólakaf/
starir upp á við en þar er ekki að finna góðan-mann/
ég klippi af þér tærnar og murka úr þér lífið/
og þú ert svo fokking ónýtur að enginn þekkir líkið/
og samt finnst þér skrýtið að enginn kom og bjargaði/
en skýringin er sú að ég drap alla sem að þú kannst-við/
var einu sinni bakari en bakaði bara vandræði/
var einu sinni tannlæknir en reif alltaf kjaft!/
en nú er ég hér og ég tek frá þér allt/ (ALLT)
allt sem þú veist svo þú veist ekki jack/
rímurnar of margar fyrir hvern sem er sem telur/
eins og tölurnar sem koma fram ef þú deilir 10 með þremur/
legg fram óleysanleg dæmi og leysi þau rétt/
því ég er guð en ekki maður eins og þú kannski hélst/


Kominn með nóg af þeim leik sem ég datt inn í óvart/
því ég elska ísland þó ég hati fólkið sem stjórnar/
ég mun elta alla uppi sem að ljúga að mér um breytingar/
en setjast svo í einkaþotu og skilja eftir eymdina/
sjáiði eða eru allir löngu orðnir blindir?/
þið látið leiða ykkur með hvítann staf dýpra inn í myrkrið/
virðist vera sá eini á landinu sem hefur yfirsjón/
og ég fíla ekki að vera hann svo farð-að vakna þyrnirós/
sjálfstæður maður en ekki sjálfstæðismaður/
því ég stend ekki með flokki sem er ekki sannur/
sandkassakrakkar sem vita ekkert um ástandið/
og ef þeir eru ekki ráðandi þá enda þeir heima grátandi/
hættið að taka okkur öll í ósmurt rassgatið/
og feisið það að þessir leikir eru tapaðir/
hæfni ykkar í starfinu er orðin of umdeild/
svo stöndum uppúr sófanum og hefjum svo uppreisn!/
END OF LINE