halda þessu gangandi þetta er gamall texti, ég tími ekki nýju þið vitið hvað ég meina, því textar eru ekkert án flæðis.

Blessuð vertu kæra vinkona\
Ég verð að taka á þessu svona\
Þú villt ekki svara i síman svo ég skrifa\
Ertu að missa vonina vina langar þér ekki að lifa\
Ekki láta veikt hjarta þitt hætta að tifa\
Þú ert föst í svartri veröld en þar er ljós rifa\
Þú og vinkonurnar ætluðuð fyrst bara vera gellur\
Reyktuð drukkuð sukkuð lengra og nú reyki þið ellur\
Hægðu á þér vina\
Þú hendir eldspýtunni þessvegna kveiknaði sina\
Föst í eldhafinu snúðu þér við og þá snýrðu að vatninu\
Voninni\ en gerðu það hættu að loka þig inni\

Þú sekkur og sekkur hættu áður en guð á þér slekkur\

Já það er mikill trekkur í sál þinni\
Manstu hver ég er eða ertu búinn að missa allt minni\
Ég veit þú fyrirgefur mér aldrei fyrir að vera með hinni\
Virtu sjálfa þig þigþigþig svo þessu linni linni linni\
Mundu þú ert andi sál og líkami\
Þetta er hræðilegur vani\
Sem verður líklegast þinn bani\
Ég get ekki sagt neitt nema fyrirgefðu guði\
Þótt þú fyrirgefir mér ekki ég er hættur þessu suði\

Þú sekkur og sekkur hættu áður en guð á þér slekkur\