Texti sem ég er að fara með í stúdíó á næstunni, öll uppbyggjandi comment vel þegin ;)


Þegar þú vefur þennan vef sé ég að það er/
Ekki hægt að fylgja þér, eftir þessum veg/
allar þessar hugsanir og endalausar pælingar/
hvernig væri-það að lifa ef þú bara ættir-stað/
til að flýja á ef eitthvað myndi bjáta-á/
en þú átt engan stað svo þú ert skák-og mát/
reynir að vera sjálfstæð, reynir að standa-upp/
en það er flogið í burtu eins og lífsgleðin í hjartanu/
hefur séð alltof margt, gerast í skyndingu/
hefur gert alltof margt til að halda minni virðingu/
skil ekki hvernig þú gengur því svona hlutir lama/
eftir að hafa bara stungið stoltinu í vasann/
þú verður að betrumbæta manneskjuna sem þú ert/
skapa nýtt hjarta og henda út því sem er skemmt/
ég skal fyrirgefa þér allt þó ekki beint gáfulegt/
því að mikilvægara er að fyrirgefa sjálfum-sér/
END OF LINE