Ég er að fara með þetta shit í stúdíó á næstunni og þess vegna ákvað ég að henda þessu inn og fá einhver feedbacks áður en ég rek smiðshöggið á verkið. öll uppbyggjandi comment vel þegin ;)



Í köldu rúmi sef ég og botna ekki í neinu/
Dreymi vonda drauma um mengun og sprengjur/
Pælingin svo skrýtin að við höfum reynt-að/
koma í veg fyrir allt þetta en að lokum hafi það feilað/
Lít í kringum mig og sé bara auðnina/
Lítil börn á götunni að betla fyrir brauðbita/
Fæ sting í hjartað og langar til að hjálpa/
en get ekki annað en haldið áfram að glápa/
Sé fjölskyldur í molum að reyna að leita að ástvinum/
Í álinu, sem virðist hafa átt þátt í málinu/
En, svo finnst enginn og, ég er svo sleginn og/
er illa leikinn og, ég er svo feginn að/
þetta sé bara draumur og svona gerist ekki í alvöru/
ekki nema heiminum væri stjórnað af mannöpum/
en svo hugsa ég lengra og það gerir mig smeykan/
hvað ef þetta er lífið og mig er ekkert að dreyma/
END OF LINE